Tix.is

Um viðburðinn

Hinn ótrúlegi Reykjavík Kabarett blæs til fjórðu sýningarlotu á nýjum stað og verða á hverjum fimmtudegi í júní á Rosenberg. Íslenska kabarettfjölskyldan mun láta ljós sitt skína ásamt einvalaliði gesta. Blandað verður saman nýjum atriðum og flottustu og vinsælustu atriðum kabarettsins.

Sýningin hefst kl. 22:00

Það er 20 ára aldurstakmark á sýninguna.

Frjálst sætaval og takmarkaður fjöldi miða í boði. Athugið að uppselt hefur verið á hverja einustu sýningu kabarettsins hingað til. Við minnum einnig á að ekki þarf að skilja íslensku til að njóta þessarar sjónrænu sýningar svo hún er tilvalin fyrir þá sem eru með erlenda gesti í heimsókn.