Tix.is

Um viðburðinn

Stefán Ragnar og Tortelier - Sinfóníuhljómsveit Íslands
14. sep. » 19:30 Eldborg | Harpa

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Yan Pascal Tortelier

EINLEIKARI
Stefán Ragnar Höskuldsson

EFNISSKRÁ
Charles Gounod Sinfónía nr. 1
Jacques Ibert Flautukonsert
Witold Lutoslawski Konsert fyrir hljómsveit

Tónleikakynning í Hörpuhorni » 18:00

Stefán Ragnar Höskuldsson er einn þeirra Íslendinga sem hvað lengst hafa náð í heimi klassískrar tónlistar. Um árabil var hann fyrsti flautuleikari við hljómsveit Metropolitan-óperunnar en gegnir nú sömu stöðu við Sinfóníuhljómsveitina í Chicago þar sem hinn heimskunni Riccardo Muti er við stjórnvölinn. Það er ávallt tilhlökkunarefni þegar Stefán Ragnar kemur fram á Íslandi. Hér leikur hann konsert Iberts sem er einn vinsælasti flautukonsert allra tíma, glaðvær og áheyrilegur.

Við stjórnvölinn er Yan Pascal Tortelier, aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem er svo sannarlega á heimavelli í þessari efnisskrá. Charles Gounod er í dag helst kunnur fyrir Ave-Maríuna sem hann byggði á prelúdíu Bachs. Hann var eitt merkasta óperuskáld Frakklands á seinni hluta 19. aldar en samdi einnig tvær dásamlegar sinfóníur sem báðar hljóma á efnisskrá Sinfóníuhljómsveitarinnar í vetur. Hin fyrri er klassísk í sniði og minnir ýmist á Mozart eða Mendelssohn. Hér er um að ræða bráðsnjallt verk sem verðskuldar að hljóma mun oftar. Witold Lutoslawski var eitt fremsta tónskáld Póllands á 20. öld. Meðal lykilverka hans er Konsert fyrir hljómsveit, glæsileg og kraftmikil tónsmíð þar sem hljómsveitin öll fær að sýna hvað í henni býr.