Þungarokkshljómsveitin DIMMA sendi frá sér plötuna Eldraunir um þessar mundir. Af því tilefni blæs sveitin til tónleika í Bæjarbíói laugardaginn 16. september.
DIMMA hefur átt margar af sínum mögnuðustu stundum í Bæjarbíói og eru þeir Dimmudrengir því mjög spenntir að flytja nýja efnið sitt á þessum rómaða stað en sveitin hefur ekki spilað í Hafnarfirði í allt of langan tíma.
Um ELDRAUNIR
Eldraunir er í raun síðasti hluti af þríleik sem tengist lauslega og hófst með
útgáfu plötunnar Myrkraverk árið 2012 en þar var yrkisefnið öll þau mannanna
verk sem framin eru í myrkrinu og skuggahliðum mannlífsins. Á Vélráð, sem kom út 2014, ræddi um þá klæki sem mannfólkið notar
til þess að beygja náungann undir sinn vilja og ná yfirhöndinni og völdum í
samskiptum sín á milli. Eldraunir er svo um erfiðleikana sem við mætum hvert og
eitt í lífinu á meðan við berjumst áfram til að vinna okkur brautargengi í
köldum og hörðum heimi.
Tónlistarlega þá kveður við nýjan tón á
plötunni en hún er þyngri, harðari og hraðari en fyrri plötur Dimmu.
Hljóðheimurinn er einfaldari og meira lifandi en áður enda var sveitin búin að
eyða miklum tíma í demóupptökur áður en komið var í hljóðverið og menn vissu
upp á hár hvað gera átti þegar þangað kom.
Á Eldraunum má því heyra mjög vel æfða
rokkhljómsveit sem tekur upp við bestu aðstæður með helstu fagmenn landsins sér
til aðstoðar, en platan er tekin upp í Sundlauginni í Álafosskvosinni undir
stjórn Haraldar V. Sveinbjörnssonar upptökumeistara en Ívar Ragnarsson
hljóðblandar og Hafþór “Tempó” Karlsson tónjafnar.
Um DIMMU
DIMMA hefur skipað sér í flokk allra vinsælustu hljómsveita landsins á síðustu árum. Sveitin hefur komið fram á hundruðum tónleika út um allt land og gefið út fjölmargar plötur og mynddiska. Tónleikar Dimmu hafa verið sendir út í sjónvarpi og útvarpi og sveitin hefur verið tilnefnd til fjölda verðlauna. DIMMA vann “Flytjandi ársins” á Hlustendaverðlaununum 2016 og hlaut Krókinn – sem er sérstök viðurkenning RÚV fyrir lifandi flutning á árinu 2014.
DIMMA á Facebook: https://www.facebook.com/dimmamusic/
DIMMA á Spotify: https://open.spotify.com/artist/6aWektyglfpO0k93ns3J1Z