Tix.is

Um viðburðinn

DAGSKRÁ KVÖLDSINS: 
19:30 -   Salur opnar 
20:00 -  Une Misére 
21:00 -   RISE AGAINST 
22:30 -  Áætlaður endir* 
*Dagskráin getur riðlast og er birt með fyrirvara.

Tilkynnt hefur verið að heitasta harðkjarnaband Íslands, Un Misère, hiti upp fyrir Rise Against. Það er því ljóst að hér verður um ótrúlegt að kvöld að ræða fyrir rokkara. Sjá tilkynninguna  hér um upphitun. 


Rise Against
er bandarísk rokkhljómsveit stofnuð í Chicago árið 1999. Hún spilar „Melodic hardcore“ eða melódíska harðkjarnatónlist sem fellur undir harðkjarna pönk. Þeir eru að auki margrómaðir fyrir magnaða sviðsframkomu og fyrir að vera einstaklega kraftmiklir á tónleikum þannig að það er mikill fengur fyrir íslenska rokkunnendur í komu þeirra hingað til lands þann 23. október.

Meðlimir bandsins eru söngvarinn og gítarleikarinn Tim McIIrath, gítarleikarinn Zach Blair, bassaleikarinn Joe Principe og trommarinn Brandon Barnes. Grasrótarsenan trylltist yfir fyrstu plötum sveitarinnar, The Unraveling (2001) og Revolutions Per Minute (2003), en sveitin vakti heimsathygli með þriðju plötunni, Siren Song of the Counter Culture, sem kom út árið 2004 með lögum á borð við „Swing Life Away“ og „Give It All“.

Næstu plötur þeirra, The Sufferer & The Witness (2006) og Appeal to Reason (2008), náðu einnig frábærum árangri og náðu þriðja og tíunda sæti á Billboard 200 listanum. Á þeim má finna sum af þeirra vinsælustu lögum eins og „Savior“, „Hero of War“ og „Prayer of the Refugee“. Árið 2011 kom platan þeirra Endgame út og nýjasta platan þeirra, The Black Market, kom út árið 2014 og fékk meðal annars fullt hús í dómi tímaritsins Kerrang!. Ný plata kom út 9. júní og kallast hún Wolves. Tvö lög af þeirri plötu hafa nú þegar slegið í gegn; „House on Fire“ og „The Violence“.

Umsjón: Sena Live