Hljómsveitin Nýdönsk heimsækir Akureyringa eftir langt hlé 29. og 30.september nk. og heldur Tímamótatónleika á Græna hattinum en hljómsveitin fagnar 30 ára afmæli sínu í ár. Vopnuð nýju efni í bland við gömlu góðu lögin er líklegt að þaksperrur lyftist rétt eins og lund þeirra sem viðstaddir verða herlegheitin. 18 ára aldurstakmark.