Tix.is

Um viðburðinn

Þríeyki glæsilegra söngvara setur tóninn fyrir Berjadaga að þessu sinni með hrífandi söngdagskrá í Ólafsfjarðarkirkju. Tenórarnir frá Siglufirði ásamt Elfu Dröfn mezzó-sópran flytja þekktar aríur og dúetta í bland við lög eftir Bjarna Þorsteinsson, Sigfús Halldórsson og Ingibjörgu Þorbergs. Bjarni Frímann Bjarnason er meðleikari kvöldsins.

Aðgangur ókeypis fyrir 18 ára og yngri!

Flytjendur: Hlöðver Sigurðsson tenór, Þorsteinn Freyr Sigurðsson tenór, Elfa Dröfn Stefánsdóttir mezzósópran, Bjarni Frímann Bjarnason píanóleikari

Tónlistarhátíðin Berjadagar 2017 fer fram á Ólafsfirði 17.-20. Ágúst. Á hverju kvöldi verða klassískir tónleikar og skemmtilegir viðburðir á daginn. Dagskráin er fyrir alla aldurshópa og ókeypis aðgangur fyrir 18 ára og yngri nema í lokahófið í Tjarnarborg.

Athugið að hátíðarpassi fyrir alla tónleika og lokahóf hátíðarinnar veitir góðan afslátt en hann kostar 9500 kr./1500 kr. fyrir 18 ára og yngri.

Hátíðarpassi

Facebook