Tix.is

Um viðburðinn

Kæra manneskja


Hefur þú einhvern tíma tekið eftir því hvernig tilveran gengur hring eftir hring? Fyrst ertu barn, svo eignast þú kannski börn, sem eignast börn. Þú andar inn, andar út, inn, út, sífelldar endurtekningar, stórar sem smáar, hring eftir hring. Þú þarft súrefni til að lifa, en að lokum verður úr þér allur vindur. Af moldu ertu komin, að moldu skalt þú aftur verða. Þú ert nátengd náttúrunni og hringrásin þín og hennar eru samstilltar. Þú þarfnast hennar. Allt hefur áhrif, kæra manneskja, og vonandi munu þessar hugleiðingar fá þig til þess að sjá stöðu þína í hringrás lífsins í nýju ljósi 

Með kærum kveðjum


--------------------------------------

Danshöfundur - Valgerður Rúnarsdóttir 

Dansarar/sviðslistamenn - Ragnar Ísleifur Bragason, Snædís Lilja Ingadóttir, Valgerður Rúnarsdóttir og Védís Kjartansdóttir 

Tónlist - Áskell Harðarson

Leikmynd og búningar - Ragnheiður Maísól Sturludóttir 

Lýsing - Kjartan Darri Kristjánsson 

Ljósmynd - Ragnheiður Maísól Sturludóttir