Tix.is

Um viðburðinn

Kvennasagan á hundavaði-drepfyndin sagnfræði með söngvum! -Leikfélag Akureyrar sýnir

Kvennalistinn 1908 var róttækasta bylting Íslandssögunnar - Pussy Riot í peysufötum

HUNDUR Í ÓSKILUM er margrómaður og verðlaunaður dúett sem er leikhúsgestum hér og sunnan heiða góðu kunnur fyrir leiksýningar sínar Sögu þjóðar sem hlaut Grímuverðlaunin árið 2012 og Öldina okkar sem gekk fyrir fullu húsi í Samkomuhúsinu og svo í Borgarleikhúsinu í kjölfarið. Hér leiða þeir aftur saman hunda sína undir stjórn Ágústu Skúladóttur leikstjóra.

HUNDUR Í ÓSKILUM heldur hér áfram að varpa óvæntu ljósi á Íslandssöguna með húmorinn að vopni. Nú er komið að sögu kvenna og kvennabaráttu.

Frá því að konan kom til landsins í lok nítjándu aldar hafa íslenskir karlmenn gert sitt besta til að laga sig að breyttum aðstæðum. En hefur okkur tekist sem skyldi? Sagan greinir frá örfáum konum - raunar svo fáum að það er búið að skíra rakettur í höfuðið á þeim öllum. HUNDUR Í ÓSKILUM veltir við hverjum steini og grefur upp ýmislegt óvænt og skemmtilegt í sögu jafnréttisbaráttunnar.

Úr gagnrýni? um Kvenfólk

"Súrrealískur og stórskemmtilegur söngfyrirlestur með hárbeittum skilaboðum."SJ Fréttablaðið.

“Grjóthörð femínisk grínsýning sem fær bæði harðkjarna feminist og styttra komna til að veltast um að hlátri og tárfella” Sóley Björk Stefánsdóttir Akureyri Vikublað

“Mjög vel sviðsett…. pólitískt kvennaleikhús sem er upplýsandi, fræðandi um leið mjög skemmtilegt. Hvet alla sérstaklega ungt fólk, stráka og stelpur að fara og sjá” H.A. Menningin RÚV.

"hvet alla þá sem hafa gaman að góðu leikhúsi að drífa sig" Á.Þ.Á Vikudagur

Kvenfólk er 323 sviðsetning Leikfélags Akureyrar. Aldurshópur 12+

Höfundar og flytjendur: Eiríkur G. Stephensen og Hjörleifur Hjartarson Leikstjórn: Ágústa Skúladóttir Tónlist: Eiríkur G. Stephensen og Hjörleifur Hjartarson Ljósahönnun; Lárus Heiðar Sveinsson Myndbandshönnun; Jón Páll Eyjólfsson Leikmynd, búningar og leikmunir: Íris Eggertsdóttir Hljóðhönnun: Gunnar Sigurbjörnsson

Hljómsveit: Áslaug María Stephensen Trommur Gunnur Vignisdóttir Bassa Una Haraldsdóttir Hljómborð Margrét Hildur Egilsdóttir Söngur

Rödd í innrás kvennanna: Ólafur Darri Ólafsson Rödd í útvarpi: Jón Páll Eyjólfsson Sérsmíðuð hljóðfæri: Eiríkur Stephensen, Ilmur Stefánsdóttir Sýningastjóri: Þórhildur Gísladóttir og Berglind Elly Jónsdóttir Hár,förðun, aðstoð við búninga og gervi: Soffía Margrét Hafþórsdóttir Sviðs- og leikmyndavinna: Bjarki Árnason, Magnús Viðar Arnarsson og Jón Birkir Lúðvíksson Ljósmyndir: Auðunn Níelsson

Sérstakar þakkir Áslaug María Stephensen Jón Marino Jónsson fiðlusmiður Kvennasögusafnið Rodrigo Lopes Skrifstofa Alþingis Sóley Úa Pálsdóttir Stefán Daði Ingólfsson Tónlistarskóli Eyjafjarðar Þórunn Geirsdóttir Þórhildur Örvarsdóttir