Tix.is

Um viðburðinn

Ragga Gröndal kemur fram á Rosenberg 21. september nk. Hún mun flytja blöndu af nýju efni, íslenskum þjóðlögum og eldra efni af plötum sínum. Með henni á tónleikunum verður gítarleikarinn Guðmundur Pétursson.

Ragga Gröndal (söngkona og píanóleikari) og Guðmundur Pétursson (gítarleikari) hafa unnið saman í meira en áratug að alls konar tónlistarverkefnum. Dúett þeirra endurspeglar alla þessa tónlistarlegu reynslu og hefur jafnframt sterka tengingu við íslenska tónlist í gegnum áratugi og aldir. Tónlist þeirra er hefðbundin, nútímaleg og framsækin allt í senn og er ætlað að skapa andlega tengingu við reynsluheim fortíðarinnar sem hefur ferðast með kynslóðum í gegnum genin. Genaminni okkar og hin sameiginlega meðfædda viska birta reynslu forfeðranna í gegnum tónlistina.

Borðapantanir í s: 551 2442
rosenbergrvk.com