Tix.is

Um viðburðinn

Apríl 1940. Þjóðverjar eru komnir upp að Noregsströndum og ætla að hernema landið. Þeim tekst að ná Ósló og öðrum helstu borgum landsins á sitt vald en Hákon VII Noregskonungur flýr ásamt ríkisstjórninni til norðurhluta Noregs á meðan Þjóðverjar reyna að koma leppstjórn Vidkun Quisling til valda. En til þess að fullkomna hernámið þurfa þeir undirskrift konungs. Hermennirnir sem vernda hann eru flestir barnungir og hann þarf að ákveða hvort Norðmenn berjist gegn ofurefli eða standi með bandamönnum.

Myndin komst á lista þeirra 9 kvikmynda sem teknar voru til greina til tilnefninga til Óskarsverðlaunana sem besta erlenda myndin árið 2017.