Tix.is

Um viðburðinn
Ólafur Jónsson, saxófónn
Agnar Már Magnússon, píanó
Þorgrímur Jónsson, bassi
Scott McLemore, trommur

 Saxófónleikarinn Ólafur Jónsson fagnar nú um þessar mundir útgáfu á fyrsta geisladiski í sínu nafni sem ber titilinn “Tími til kominn”. Um er að ræða verk sem Ólafur hefur samið á undanförnum tuttugu árum þar sem blandað er saman ólíkum tónlistarstefnum á frumlegan máta. Ný íslensk jazztónlist sem bæði er frjáls en þó hefðbundin.