Tix.is

Um viðburðinn

THE PHANTOM OF THE OPERA eftir Andrew Lloyd Webber

Upplifðu vinsælasta söngleik í heimi í allri sinni dýrð í kraftmikilli sviðsuppfærslu sem lætur engan ósnortinn.

Þetta einstæða stórvirki tónlistarsögunnar eftir Andrew Lloyd Webber verður flutt af hópi okkar allra fremstu einsöngvara og leikara, auk 30 manna kórs, dansara og fullskipaðri hljómsveit SinfoniaNord.

Harpa, Eldborg, sunnudaginn 25. febrúar - ALLRA SÍÐASTA SÝNING
Harpa, Eldborg, laugardaginn 24. febrúar - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Harpa, Eldborg, sunnudaginn 18. febrúar - UPPSELT
Harpa, Eldborg, laugardaginn 17. febrúar - UPPSELT

Verkið var frumflutt í London árið 1986 í leikstjórn Harold Prince, margverðlaunaðs stórmeistara breska leikhússins með búningum og leikmynd Mariu Björnsson, hönnuðar hinnar mögnuðu grímu Óperudraugsins, sem fyrir löngu er orðin heimsþekkt táknmynd verksins.

THE PHANTOM OF THE OPERA er vinsælasti söngleikur heims. Meira en 130 milljón áhorfendur í 145 borgum 27 landa um víða veröld hafa notið þessa meistarastykkis á sviði. PHANTOM er langlífasta sýningin í sögu Broadway og eru sýningar þar löngu orðnar fleiri en tíu þúsund talsins. Næst langlífasti söngleikurinn á West End í London og þriðja langlífasta sviðsverkið í sögu West End. THE PHANTOM OF THE OPERA hlaut Olivier verðlaunin árið 1986 og Tony verðlaunin árið 1988 sem besti nýi söngleikurinn og er enn sýnt fyrir fullu húsi á Broadway og í West End og víðar um heiminn.

Söngleikurinn byggir á skáldsögu Gaston Leroux, Le Fantôme de l’Opéra. Þar segir frá söngkonunni Christine Daaé og sambandi hennar við dularfullan og ógnvekjandi tónlistarsnilling sem býr í víðfeðmu völundarhúsi undir óperuhúsi í París.

Aðalhlutverk:
Þór Breiðfjörð – The Phantom
Valgerður Guðnadóttir – Christine Daaé
Elmar Gilbertsson – Raoul, Vicomte de Chagny
Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú) – Carlotta Giudicelli
Hlöðver Sigurðsson – Ubaldo Piangi
Bergþór Pálsson – Richard Firmin
Gísli Magna – Gilles André
Margrét Eir – Madame Giry
Greta Salóme – Meg Giry

Hljómsveit: SinfoniaNord, skipuð 50 úrvalshljóðfæraleikurum undir stjórn Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar, ásamt 30 manna kór Söngskóla Sigurðar Demetz undir stjórn Ingvars Alfreðssonar.

Leikstjóri – Greta Salóme Stefánsdóttir
Danshöfundur – Unnur Elísabet Gunnarsdóttir
Búningar – Thespis (umsjón: Elma Guðmundsdóttir)
Hár, förðun og leikgervi – Sigríður Rósa Bjarnadóttir
Lýsing – Magnús Helgi Kristjánsson
Hljóð – Sigurvald Ívar Helgason og Hafþór Karlsson
Framkvæmdastjórn – Eiður Arnarsson
Framleiðandi: Todmobile ehf; Eiður Arnarsson og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson

Verkið verður flutt á frummálinu, ensku.

Tónlist: Andrew Lloyd Webber
Söngtextar: Charles Hart
Viðbótarsöngtextar: Richard Stilgoe
Handrit: Richard Stilgoe og Andrew Lloyd Webber, byggt á “Le Fantôme de l’Opéra” eftir Gaston Leroux

Upphaflegri sviðssetningu var leikstýrt af Harold Prince í framleiðslu Cameron Mackintosh Ltd. og The Really Useful Group Ltd.

Um hljóðfærasetningu sáu David Cullen og Andrew Lloyd Webber.

Umsjón: TMB viðburðir – með sérstöku leyfi The Really Useful Group Ltd.