Tix.is

Um viðburðinn

16. desember verða stórglæsilegir jólatónleikar í Höllinni.

Þeir sem framkoma eru ekki af verri endanum því fjórir af vinsælustu söngvurum landsins, hvort sem að litið sé til jólatónlistar eða popptónlistar yfir höfuð, ætla að mæta og syngja inn jólin.

Þetta árið eru það engar smá kanónur sem ætla að troða upp í Höllinni:

* Pálmi Gunnarsson
* Helga Möller
* Laddi
* María Ólafs

Ásamt einu þéttasta tónleikabandi landsins, skipað 5 af hæfileikaríkustu hljóðfæraleikurum Íslands.

Forsala miða er hefst föstudaginn 17. nóvember.

Miðaverð er 7.900 kr en fram til 1. desember verða miðarnir á sérstöku forsölutilboði, aðeins 6.500 kr.

Hið margrómaða og gríðarlega gómsæta Jólahlaðborð frá Einsa Kalda verður að sjálfsögðu í boði fyrir tónleikana.