Þessi frábæra
söngkona fagnar útkomu þriðju sólóplötunnar sem verður flutt í heild sinni auk
eldra efnis.
Hildur Vala Einarsdóttir vakti þjóðarathygli árið 2005 þegar hún sigraði
í Idol Stjörnuleit og í kjölfarið tók íslenska þjóðin við hana ástfóstri.
Fyrstu tvær sólóplötur hennar náðu miklum vinsældum en síðan dró Hildur Vala
sig úr sviðsljósinu og við tók tónlistar- og háskólanám auk þess sem þrjú börn
hafa komist á legg. Í febrúarmánuði 2018
kemur loks hennar þriðja sólóplata út og í þetta sinn semur hún tónlistina
sjálf. Platan verður flutt í heild sinni auk þess sem gömlu, góðu lögin fá að
fljóta með.
Henni til aðstoðar verður
úrvalslið tónlistarmanna.
Aðdáendur Hildar Völu ættu ekki að láta þessa tónleika fram hjá sér fara.