Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar
Hér kynnumst við tveimur litlum manneskjum sem eru að æfa sig í að vinna saman. Þær leika sér saman, prófa sig áfram og komast að því hvað gerist þegar forsendum í leiknum er breytt.
Skemmtileg leikhúsupplifun fyrir börn sem eru að læra á heiminn.
Aldurshópur: 2ja-5 ára
Leiksýningin er sýnd í Kúlunni við Lindargötu 7.