Tix.is

Um viðburðinn

DesignTalks ráðstefnan markar upphaf HönnunarMars, uppskeruhátíð hönnuða og arkitekta en hátíðin fagnar tíu ára afmæli 2018. Að því tilefni horfum við til framtíðar með augum skapandi brautryðjanda nútímans og fögnum framfaramætti hönnunar til áhrifa á flestum sviðum samfélagsins. 

Fyrirlesararnir mæta áskorunum samtíma og framtíðar með aðferðafræði hönnunar; hugviti, handverki og tæknilausnum.  Viðfangsefnin spanna vítt svið, allt frá húsnæðismálum, orkunýtingu og náttúrubreytinga á norðurslóðum yfir í jafnréttismál, sjálfbærni og gagnvirkar lausnir.

Framúrskarandi arkitektar og hönnuðir víðsvegar að úr heiminum veita innblástur á DesignTalks 2018: Bea Szenfeld fatahönnuður og listakona, Anton & Irene gagnvirkt hönnunarteymi, Kaave Pour hönnunarstjóri og stofnandi Space10Andreas Martin-Löf arkitekt, Daisy Ginsberg hönnuður og rithöfundur, Arctic Design Group landslagsarkitektar og borgarfræðingar, Tekla Severin ljósmyndari og sviðshönnuður, Marjan Van Aubel sólarorkuhönnuður, Matylda Krzykowski hönnuður og sýningarstjóri, Henrik Vibskov fatahönnuður, Steinþór Kári Kárason arkitekt og hönnuðirnir Björn Steinar Blumenstein og Johanna Seelemann.

Listrænn stjórnandi DesignTalks 2018 er Hlín Helga Guðlaugsdóttir, hönnuður, ráðgjafi og framtíðarrýnir. Hlín leiðir einnig dagskrá dagsins í samvinnu við Paul Bennett hönnunarstjóra IDEO, eins framsæknasta hönnunarfyrirtækis heims. DesignTalks er einstakur viðburður sem áhugafólk um nýjustu strauma og stefnur í hönnun og arkitektúr lætur ekki framhjá sér fara. Fyrirlestradeginum er ætlað að veita áhrifafólki í viðskiptum, stjórnvöldum, almenningi og hönnuðum innblástur til samstarfs og framfara.

Forsætisráðherra Íslands, Katrín Jakobsdóttir, setur DesignTalks 2018.

DesignTalks viðburðurinn er skipulagður af Hönnunarmiðstöð Íslands í samstarfi við Arion banka og Reykjavíkurborg.

Dyrnar opna kl.8.30. Kaffitár býður uppá morgunkaffi. Hádegismatur er ekki innifalinn í miðaverði.