Tix.is

Um viðburðinn

Margir hafa þegar tilnefnt I, Tonya sem eina af bestu myndum ársins!

Hún segir frá þeim fræga atburði þegar ráðist var á bandarísku listskautadrottninguna Nancy Kerrigan í ársbyrjun 1994 og tilraun gerð til að fótbrjóta hana. Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto þar sem hún hlaut frábæra dóma.

Þótt myndin sé sannsöguleg er hún um leið svört kómedía þar sem leikhópurinn með þeim Margot Robbie, Sebastian Stan og Allison Janney í broddi fylkingar, þykir fara á algjörum kostum.