Tix.is

Um viðburðinn

Reykjavík Cocktail Weekend er kokteilahátíð sem haldin er árlega í miðborg Reykjavíkur af Barþjónaklúbbi Íslands í samstarfi við fjöldann allan af veitinga og skemmtistöðum í borginni. Hátíðin er haldin árlega og er þetta í fimmta sinn sem hátíðin fer fram. Að þessu sinni fer hátíðin fram dagana 31. janúar - 4. febrúar.

Á meðan á hátíðinni stendur verður sérstakir Reykjavík Cocktail Weekend kokteil seðlar í boði á stöðunum sem taka þátt og verða þeir drykkir á sérstöku tilboðasverði. Staðirnir munu bjóða uppá fjölda viðburða tengda hátíðinni sem eru öllum opnir.

Barþjónaklúbburinn sjálfur stendur fyrir tveimur stórum viðburðum sem opnir eru almenningi og hvetjum við sem flesta til mæta.

Fimmtudaginn 1. febrúar
Gamla Bíó
Íslandsmót Barþjóna og kynningar helstu vínbirgja landsins á straumum og stefnum kokteilgerðarinnar. Forkeppni í Íslandsmeistaramóti Barþjóna(IBA) og Íslandsmóti með frjálsri aðferð sem að þessu sinni verður þemakeppni (Viskí diskó), samhliða því verða helstu vínbirgjar landsins með kynningar á sínum vörum.