Tix.is

Um viðburðinn

Reykjavík Dance Festival kynnir:
Unglingurinn í Reykjavík

Við ætlum að spila uppáhaldstónlistina okkar. Stundum syngjum við með eða dönsum með eða grátum með eða hvað sem er. Við ætlum að tala um tónlist og um okkur sjálf, okkar hugmyndir, áhyggjur, pælingar og drauma. Við ætlum að hanga saman, hlusta á tónlist saman og hlusta á hvort annað með áhorfendum. Við eigum sviðið, við höfum orðið, við höfum völdin og - jafnvel þó það sé bara á meðan á sýningunni stendur - þetta okkar partý og við megum gera það sem við viljum.

Danshöfundur: Ásrún Magnúsdóttir
Flytjendur og meðhöfundar : Marta Ákadóttir, Lukka Mörk, Sverrir Gauti Svavarsson, Baldur Einarsson, Steinunn Þórðardóttir, Erna Benediktsdóttir, Haukur Guðnason, Sæþór Elí Bjarnason, Egill Andrason, Saga Klose, Karen Nordquist Ragnarsdóttir, Jón Karl Sigurðsson, Stefán Árni Gylfason, Theodór Pálsson, Lea Alexandra Gunnarsdóttir, Hanna Greta, Uloma Ousala, Ísafold Kristín, Lúkas Örvar Blurton, Emma Ýrr Hlynsdóttir, Óðinn Sastre, Þuríður Guðrún Pétursdóttir, Jana Ebenezardóttir, Viktoría Mist, Ilmur María Arnarsdóttir, Sigríður Ragnarsdóttir, Aron Gauti, Arnór Máni Birgisson, Oliver Alí, Hringur Kjartansson, Karl Jóhann Jónsson, Ólafur Björgúlfsson, Halldóra Björg Einarsdóttir.

Tæknistjóri og ljósahönnuður: Alma Mjöll

Ljósmynd: Owen Fiene

Verkið var frumsýnt á og framleitt af alþjóðlegu sviðslistahátíðinni Everybody´s Spectacular. Það er partur af verkefninu ,,Um alla borg og upp á svið" sem er styrkt af Mennta - og menningarmálaráðuneytinu, Urban Heat og apap – Performing Europe 2020, sem eru bæði samfjármagnuð af Creative Europe dagskrá Evrópusambandsins.

Verkið er sýnt í samstarfi við Þjóðleikhúsið.