Músíktilraunir er
tónlistarhátíð sem stendur yfir í 5 daga. Hátíðin á sér yfir 35 ára sögu en
fyrstu tilraunirnar fóru fram árið 1982. Ungmenni á aldrinum 13-25 ára geta
sótt um þátttöku með því að senda inn umsókn á heimasíðu tilraunanna og greiða
þátttökugjald. Undankvöldin eru fjögur þar sem u.þ.b. 40 hljómsveitir
keppa að því takmarki að komast áfram á úrslitakvöldið.
Um 10-12 hljómsveitir komast í úrslit og hljóta efstu þrjár sveitirnar glæsileg
verðlaun. Efnilegustu hljóðfæraleikararnir eru einnig valdir af dómnefnd en
áhorfendur velja vinsælustu hljómsveitina með símakosningu. Undanfarin ár hefur
úrslitakvöldinu verið útvarpað um land allt af Rás 2 og árið 2016 hóf
Ríkissjónvarpið að streyma úrslitakvöldinu í beinni útsendingu á www.ruv.is.
Músíktilraunirnar
veita frábært tækifæri til þess að fylgjast með grasrótinni í íslensku
tónlistarlífi og hafa hljómsveitir á borð við Of Monsters and Men,
Samaris, Vök og Vio borið sigur úr bítum undanfarin ár. Undankvöldin verða 18-
21.mars 2018 kl.19:30 og er miðaverð á hvert undankvöld 1500 kr.
Úrslitakvöldið er haldið 24.mars og er miðaverð 2000 kr.
Nánari upplýsingar er að finna á:
www.musiktilraunir.is
www.facebook.com/musiktilraunir
Icelandair er aðalbakhjarl Músíktilrauna.