Tix.is

Um viðburðinn

Kvöldstund með Gísla Pálssyni sem segir sögu Hans Jónatans, mannsins sem stal sjálfum sér og settist að á Djúpavogi árið 1805. Ævisagan um Hans Jónatan kom út 2014 og hefur nú verið þýdd á ensku, dönsku og frönsku. Nýleg rannsókn á vegum Íslenskrar Erfðagreiningar þar sem erfðamengi Hans Jónatans var endurgert hefur vakið athygli á sögu hans á ný, líklega meiri en nokkru sinni fyrr. Enska útgáfan var á lista Times Literary Supplement fyrir Bækur ársins 2017. Gerð hefur verið heimildamynd um Hans Jónatan og afkomendur hans sem frumsýnd var á Djúpavogi, Reykjavík og
Vestamannaeyjum á síðasta ári.

Veitingastofurnar eru opnar til 22 þetta kvöld eins og önnur fimmtudagskvöld og er hægt að fá kvöldverð á undan kvöldstundinni. Pálmar Ólason leikur á píanóið frá 18.30-20, gleðistund (happy hour) frá 17-19. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is

Gísli gefur Hannesarholti vinnu sína.