Tix.is

Um viðburðinn

Pálmar Ólason og Magnea Tómasdóttir stjórna fjöldasöng í klukkustund þar sem textar birtast á tjaldi og allir taka undir. Að þessu sinni eru skátalögin í forgrunni, enda átti upphafsmaður skátahreyfingarinnar, Baden Powell afmæli í vikunni, þann 22.febrúar. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 króna aðgangseyri.

Hannesarholt vill hlúa að söngarfi þjóðarinnar og býður þess vegna uppá fjöldasöngstundir á 2-3 vikna fresti. Allir velkomnir!