Tix.is

Um viðburðinn

Óperufélagið Norðuróp Í samvinnu við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og Hljómahöll í Reykjanesbæ, setur upp gamanóperuna „Brúðkaup Fígarós“ eftir Wolfgang Amadeus Mozart við texta Lorenzo da Ponte.

Þetta er ein af vinsælustu óperum Mozarts og er sýnd reglulega í öllum óperuhúsum heims. Óperan er mikill farsi þar sem segir af greifa nokkrum, konu hans og þjónustufólki. Hún gerist á brúðkaupsdegi Figarós sem er þjónn greifans og Súsönnu þernu greifafrúarinnar. Greifinn er leiður á konu sinni og leitar að öðrum ævintýrum annars staðar, þá aðallega hjá Súsönnu og þá hefst mikil og skemmtileg atburðarás.

Óperan verður flutt í Bergi í Hljómahöll með píanóundirleik í leikmynd og búningum með leikhúslýsingu. Fram koma margir af okkar bestu og efnilegustu söngvurum af Suðurnesjum, Akranesi og af stór Reykjavíkursvæðinu.

Hlutverkaskipan:

Figaró Davíð Ólafsson / Júlíus Karl Einarsson

Súsanna Guðbjörg Hilmarsdóttir / Jelena Raschke

Greifinn Magnús Guðmundsson / Júlíus Karl Einarsson

Greifafrúin Bylgja Dís Gunnarsdóttir / Hanna Þóra Guðbrandsdóttir

Cherubino Guðbjörg Guðmundsdóttir / Sigrún Lína Ingólfsdóttir

Basilio Hjálmar Benónýsson / Marinó Már Magnússon

Bartolo Ingólfur Ólafsson / Jóhann Smári Sævarsson

Marcellina Dagný Jónsdóttir / Una María Bergman

Barbarina Lena Stesii / Sara Dögg Gylfadóttir / Ösp Birgirsdóttir

Don Curzio Hjálmar Benónýsson / Marinó Már Magnússon

Antonio Haraldur Arnbjörnsson / Haukur Björnsson

Bjarkar Snær Arnarsson / Tyrfingur Þorsteinsson

Leikstjóri og tónlistarstjóri er Jóhann Smári Sævarsson Undirleikari er Kristján Karl Bragason.

Sýningar verða fjórar:  29. 30. maí og 3. 4. júní.

Miðaverð: 3.000 kr.