Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Myrkir Músíkdagar er tónlistarhátíð sem býður upp á metnaðarfulla dagskrá sem samanstendur af fjölda spennandi tónleika með samtímatónlist á dimmasta tíma ársins. Markmið hátíðarinnar er að veita birtu í huga áhorfenda og þátttakenda í svartasta skammdeginu. Hátíðin er ein elsta tónlistarhátíð landsins, stofnuð árið 1980 af Tónskáldafélagi Íslands sem vettvangur fyrir íslensk tónskáld til að fá verk sín flutt. Í dag er hátíðin vettvangur til að flytja og kynnast samtímatónlist með áherslu á nýja, íslenska tónlist og flytjendur í bland við erlend verk og erlenda flytjendur.

Á Myrkum músíkdögum í ár verður lögð áhersla á áhugaverða og skemmtilega tónleika þar sem meginþorri verkanna eru frumflutt á hátíðinni. Boðið verður upp á einstaklega fjölbreytta dagskrá sem inniheldur einleikstónleika, kammertónleika, slagverks- og raftónleika. Má þar nefna einleikstónleika píanóleikarans Eddu Erlendsdóttur, orgeltónleika Guðnýjar Einarsdóttur til heiðurs Jóni Nordal, tónleika norsk/franska kvartettsins Dans les arbres sem flytur þétta spunatónlist, en kvartettinn var tilnefndur til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs árið 2016. Þá eru ótaldir árlegir tónleikar Caput, Kammersveitar Reykjavíkur, Nordic Affect og Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Stakir miðar á tónleika hátíðarinnar kosta kr. 2.000. Einnig er hægt að kaupa Klippikort, á fimm tónleika að eigin vali, á kr. 7.500 og Hátíðarpassa á kr. 12.500.

Nánari upplýsingar um einstaka tónleika hátíðarinnar hér