Músíktilraunir er tónlistarhátíð sem stendur yfir í 5 daga. Ungmenni á aldrinum 13-25 ára geta sótt um þátttöku með því að senda inn umsókn á heimsíðu tilraunanna og greiða þátttökugjald. Undankvöldin eru fjögur þar sem um 40 hljómsveitir keppa að því takmarki að komast áfram á úrslitakvöldið.
Um 10-12 hljómsveitir komast í úrslit og hljóta fyrstu 3 sveitirnar glæsileg verðlaun.
Þá velur dómnefnd efnilegustu hljóðfæraleikarana og einnig er vinsælasta hljómsveitin valin með símakosningu á meðal áhorfenda. Undanfarin ár hefur úrslitakvöldinu verið útvarpað um land allt af Rás 2 og tekur sjónvarpið einnig viðburðinn upp og sýnir síðar.
Músíktilraunir veita frábært tækifæri til að fylgjast með grasrótinni í íslensku tónlistarlífi og hafa hljómsveitir á borð við Of Monsters and Men, Samaris, Vök og Vio borið sigur úr bítum, undanfarin ár.
Undankvöldin verða 2.- 5.apríl 2016 kl.19:30 og er miðaverð á hvert kvöld 1500 kr.
Nánari upplýsingar er að finna á www.musiktilraunir.is og www.facebook.com/musiktilraunir
Icelandair er aðalbakhjarl Músíktilrauna 2016.