Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Skrímslið litla systir mín, saga Helgu Arnalds, heyrist nú í fyrsta sinn í sinfónískum búningi með tónlist Eivarar Pálsdóttur. Eivør og Halldóra Geirharðsdóttir ásamt Graduale Futuri flytja söguna í tali og tónum í útsetningu Trónds Bogasonar við myndefni Bjarkar Bjarkadóttur. Á þessum sannkölluðu ævintýratónleikum má heyra söguna af Bjarti sem eignast litla „skrímsla“-systur sem étur mömmu og pabba. Hann ferðast alla leið út á heimsenda til að reyna að skila systur sinni og fá mömmu og pabba til baka.

Á tónleikunum má einnig heyra Gullbrá og birnina þrjá í flutningi Sinfóníuhljómsveitinnar með skemmtilegu afbrigði af brúðuleikhúsi án orða, einskonar pappírsbíói, þar sem leikmynd og brúður eru klipptar út líkt og dúkkulísur. Pappírsbíóinu, sem unnið er af Helgu Arnalds, er varpað upp á tónleikunum þannig að hlustendur geti hvílt í áhrifaríkum ævintýraheimi um leið og þeir njóta tónlistarinnar.