Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Krishna Das er rokkstjarna jóganna. Rödd hans tjáir djúpar tilfinningar sem snerta innsta streng hlustandans. Krishna Das hefur fært jógíska sönginn út fyrir jógasalina og inn í tónlistarhúsin. Hann er orðin táknmynd jógískrar tónlistar þar sem hefðin er að kyrja saman, og trónir tónlistin hans efst á metsölulistum Vesturlanda.

Krishna Das lofar að tónlistin muni grípa þig þannig að þú viljir renna saman í eitt með henni. Og það sé markmiðið, að komast djúpt í gegnum lögin. Þú lýsist upp. Þú þarft ekki að skilja textana, bara leyfa þeim að hljóma innra með þér.

Stórt svæði er í boði á gólfi og þarf hver og einn að taka með sér jógadýnu og/eða púða til að sitja á. Einnig verða um 200 stólar í boði uppi á svölum, aftast á gólfi, og meðfram veggjum á gólfi.