Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

18. MAÍ: ÖRFÁ SÆTI LAUS
19. MAÍ: ÖRFÁ SÆTI LAUS
ATH: EKKI ER HÆGT AÐ BÆTA VIÐ FLEIRI SÝNINGUM

DAGSKRÁ KVÖLDSINS:
19.00    Salur opnar
19:30    John Cleese - Fyrri hluti
20:20    Hlé
20:40    John Cleese - Seinni hluti                                         
21:30    Áætlaður endir*
* Dagskrá getur riðlast og er birt með fyrirvara.

Cleese er leikari, grínisti, handritshöfundur, kvikmyndaframleiðandi og lifandi goðsögn. Hann er þekktur fyrir að vera meðlimur í hinum sögufræga Monty Python-grínhóp og fyrir gamanþættina Fawlty Towers, sem eru orðnir að grínklassík og voru gríðalega vinsælir hérlendis sem annars staðar. Cleese hefur leikið í fjölda þekktra bíómynda á borð við  A Fish Called Wanda,  Rat Race,  Harry Potter og  James Bond. Að auki hefur hann talað inn á teiknimyndir eins og  Shrek,  Planes og  Trolls.

Í sýningunni mun Cleese deila sögum og minningum með áhorfendum sem hann hefur sankað að sér á 40 ára litríkum ferli sínum. 

Um fimm verðsvæði er að ræða og eru þau sem hér segir:
Úrvalssæti           11.990     (sjá fjólublátt á mynd)
Verðsvæði 1         9.990      (sjá rautt á mynd)
Verðsvæði 2         9.990      (sjá blátt á mynd)
Verðsvæði 3         7.990      (sjá grænt á mynd)
Verðsvæði 4         6.990      (sjá gult á mynd)

Sjá mynd af sal hér

Umsjón: Sena Live