Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Jónína Ara - Remember

 

Útgáfutónleikar

Söngkonan og lagasmiðurinn Jónína Aradóttir fagnar útgáfu annarrar hljómplötu sinnar „Remember“ um þessar mundir. Að því tilefni heldur hún útgáfutónleika í Kaldalóni í Hörpu föstudaginn 20. október. Um plötuna segir Jónína hún semji sjálf bæði lög og texta, og á henni megi finna allt frá þjóðlagatónlist og blús yfir í popp og rokk. Lögin taki oftar en ekki á hennar eigin raunum og upplifunum úr tilhugalífinu með grátbroslegum hætti.

 

Jónína hefur spilað og komið fram víða á Íslandi, sem og í Danmörku og Bandaríkjunum. Hún stundaði nám við Musicians Institute í Los Angeles þar sem hún lauk Associate in Art and Performance gráðu árið 2013.

Með Jónínu á útgáfutónleikunum verða:

 

Sigfús Óttarsson, trommur

Róbert Dan Bergmundsson, bassi

Árni Þór Guðjónsson, gítar

Helgi Georgsson, hljómborð

Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir, raddir

Guðrún Árný Karlsdóttir, raddir

 

Frekari upplýsingar á www.joninamusic.com