Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

ZHdK Strings og Ísak Ríkharðsson 

ZHdK Strings er fjölþjóða strengjasveit skipuð 20 nemendum við Tónlistarháskólann í Zürich í Sviss.  Stofnandi hennar og stjórnandi er Prof. Rudolf Koelman, kennari við skólann, fyrrum konsertmeistari Concertgebouw hljómsveitarinnar í Amsterdam og einn af síðustu nemendum hins goðsagnakennda fiðluleikara Jascha Heifetz. Strengjasveitin hefur haldið fjölda tónleika í Sviss auk þess að hafa farið reglulega í tónleikaferðir til heimalanda nemenda, m.a. til Ítalíu, Tyrklands, Suður-Kóreu og Taílands. Á efnisskránni eru verk eftir Mozart, Debussy, Ravel, Jón Leifs og Grieg. Einleikarar á tónleikunum eru Ísak Ríkharðsson og Cecilia Zacchi.  Cecilia leikur einleik á hörpu í Danse Sacre et Profane eftir Debussy, hún lauk sólistaprófi frá Tónlistarháskólanum í Zürich á síðastliðnu ári.  Ísak leikur einleik á fiðlu í Tzigane eftir Ravel í eigin útsetningu fyrir fiðlu, hörpu og strengjasveit.  Þá eru píanóverk Jóns Leifs op. 2 einnig í útsetningu Ísaks fyrir strengjasveit eftir hlé.  Ísak hefur lokið BA og MA gráðum frá Tónlistarháskólanum í Zürich og byrjaði í meistaranámi við sólistadeild sama skóla nú í haust þar sem kennari hans er Rudolf Koelman.

 Efnisskrá: W.A. Mozart, Divertimento í F-Dúr K. 138 C. Debussy, Danse Sacre et Profane L. 103 fyrir hörpu og strengi M. Ravel, Tzigane, Rapsodie de Concert í útsetningu fyrir fiðlu, hörpu og strengi - Hlé - Jón Leifs, Fjögur lög op. 2 fyrir píanó í útsetningu fyrir strengi E. Grieg, Frå Holbergs tid op. 40