Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Ævintýrið um norðurljósin; ópera/ballet fyrir börn og fullorðna eftir Alexöndru Chernyshovu.

Ævintýrið um norðurljósin; óperuballett er í tveimur þáttum. Þetta er vetrarævintýrasaga þar sem amman Valdís segir barnabörnum sínum sögu þegar þeir eru í heimsókn hjá henni í vetrarfríinu sínu. Ævintýrasagan er um ást tröllastelpu og álfadrengs, íkornann Ratatoska, álfadrottninguna sem verndar samhljóminn og lög íbúa heimanna níu, hinn volduga Njörð og konu hans Skaða. Sagan fjallar um það hvernig falleg ást álfadrengs og tröllastelpu bjó til norðurljósin sem við dáumst að á hverjum vetri. Ævintýralandið og nútíminn renna saman í ævintýri um norðurljósin. 

Tónlist: Alexandra Chernyshova
Saga: Evgenia Chernyshova 
Íslenskt þýðing: Árni Bergmann
Vídeóverk: Jón R. Hilmarsson
Danshöfundur: Brynja Scheving 
Hljómsveitarstjóri: Julian Hewlett

Hlutverk: 
Tröllastelpan Triesta: Ingveldur Ýr Jónsdóttir
Álfadrengurinn Grímlir: Gunnar Björn Jónsson
Álfadrottning: Alexandra Chernyshova
Njörður: Michael Jón Clarke 
Skaði: Soffía Dröfn Marteinsdóttir 
Amma Valdís: Gerður Bolladóttir
Ratatoski: Jón Svavar Jósefsson
Ömmubörnin: Alexander Logi og Nikolai Leo Jónssynir 
Ævintýraverur: Skólakór Stóru-Vogaskóla og Rússneska skólans MÍR
Ævintýradansarar og norðandísirnar sjö: nemendur úr Balletskóla Eddu Scheving

Öll börn sem koma á frumsýninguna fá bók og hljóðsögu að gjöf, afhenta við innganginn. Hér má sjá sýnishorn úr barnabókinni "Ævintýrið um norðurljósin" - https://youtu.be/_SLYnGNnXko

Skemmtileg sýning fyrir alla fjölskylduna.