Tix.is

Þjóðleikhúsið

Um viðburðinn

Er hægt að beita ofbeldi án þess að átta sig á því? Er hægt að vera dæmdur til refsingar án þess að vita hver refsingin er? Hver eru mörk hefndar og réttlætis? Nýtt og ágengt íslenskt verk um ungt fólk, ástarsambönd, ofbeldi og refsingu.

"Ísland er ástarsamband; tveir spennuþrungnir flekar sem eru að gliðna í sundur. Í eilífum átökum, dansandi hægan en viðkvæman dans þar til spennustigið er ofhlaðið og úr verða sársaukafullir og óhjákvæmilegir skjálftar. Því þannig er ástin. Að lokum hristumst við í sundur, við verðum að tveimur eyjum. Þetta er alveg skýrt, er það ekki?"

Sölvi og Sara kynnast við ofbeldisfullar aðstæður og eiga í stuttu en ástríðufullu ástarsambandi. Nokkru síðar fær Sölvi bréf þar sem Sara sakar hann um að hafa beitt sig kynferðisofbeldi. Sölvi þarf að játa á sig brot sem hann er þó ekki viss um að hafa framið. Af stað fer atburðarás þar sem engum sem hlut eiga að máli er hlíft, og lífi Sölva og Söru er umturnað.

Gott fólk er byggt á samnefndri skáldsögu Vals Grettissonar sem hlaut frábæra dóma þegar hún kom út á síðasta ári. Sagan varpar fram áleitnum spurningum: Er hægt að beita ofbeldi án þess að átta sig á því? Er hægt að vera dæmdur til refsingar án þess að vita hver refsingin er? Hver eru mörk hefndar og réttlætis?

Leikstjórn: Una Þorleifsdóttir
Leikmynd og búningar: Eva Signý Berger
Lýsing: Magnús Arnar Sigurðarson
Leikgerð: Símon Birgisson og Valur Grettisson
Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson

Leikarar: Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Birgitta Birgisdóttir, Baltasar Breki Samper, Snorri Engilbertsson og fleiri

Sýnt í Kassanum