Tix.is

Menningarfélag Akureyrar

Um viðburðinn

Tónleikarnir „Kvöldvaka“ eru í leikhúsformi, þar sem flæða saman í einni heild íslensk þjóðlög og íslenskar þjóðsögur. Á Kvöldvöku eru áhorfendur leiddir aftur í tímann, hlýða á sögur og tónlist sem minna á hina gamalkunnu 18. aldar kvöldvöku í baðstofunni, en með nútímalegu ívafi.

Sigrún Harðardóttir: Útsetningar, 1. fiðla
Lára Sóley Jóhannsdóttir: 2. fiðla
Þóra Margrét Sveinsdóttir: Víóla
Ásta María Kjartansdóttir: Selló
Agnes Wild: Handrit, leikstjóri og leikkona