Tix.is

Menningarfélag Akureyrar

Um viðburðinn

Hljómsveitirnar Úlfar, World Narcosis og Brák koma fram á tónleikum í Hofi í sumar. Sveitirnar eiga það sameiginlegt að vera á jaðri nútímatónlistar og að hafa gert það gott í íslensku jaðarsenunni undanfarin ár. Þær munu nú gjósa upp á yfirborðið með tónleikum í Hofi þann 13. júlí. Þetta er einstakt tækifæri til að sjá World Narcosis í fyrsta sinn á Akureyri auk þess sem þetta eru fyrstu tónleikar sveitanna Úlfar og Brák norðan heiða á árinu.