Tix.is

Salurinn

Um viðburðinn

Miðar á forsölu til 15. ágúst á 4.150,-. Fullt verð: 4.900,-

Það má með sanni kalla Braga Valdimar fjöllistamann sem færist frekar í aukana heldur en hitt.  Til að byrja með birtist hann okkur sem Baggalútur með öllu því gríni sem tilheyrir og þar voru skondnir jólatextar framarlega í flokki.  Lagahöfundurinn kom síðan smám saman í ljós og virðist kauði jafnvígur á alla stíla í þeim efnum.  Til að toppa þetta gerðist hann síðan sjónvarpsstjarna og kom þjóðinni á orðbragðið eins og ekkert væri.  Bragi ætlar að syngja þetta kvöld, rétt eins og aðstoðarfólkið Sigríður Thorlacíus og Kristbjörn Helgason.