Um viðburðinn
40 ár eru liðin frá útgáfu plötunnar út um græna grundu og af því
tilefni verður tónlistin af þessum plötum flutt í útsetningum Gunnars
Þórðarsonar. Tónlistarstjórn er í höndum Guðna Bragasonar og í leikstjórn
Jóhanns Kristins Gunnarssonar. Stórsöngvararnir Kristján Gíslason og Alma Rut
Kristjánsdóttir auk 7 manna hrynsveitar, blásara, strengjasveitar, bakradda og
barnakór sjá um að koma þessu vel til skila.