Tix.is

Salurinn

Um viðburðinn

Það má með sanni kalla Braga Valdimar fjöllistamann sem færist frekar í aukana heldur en hitt. Til að byrja með birtist hann okkur sem Baggalútur með öllu því gríni sem tilheyrir og þar voru skondnir jólatextar framarlega í flokki. Lagahöfundurinn kom síðan smám saman í ljós og virðist kauði jafnvígur á alla stíla í þeim efnum. Til að toppa þetta gerðist hann síðan sjónvarpsstjarna og kom þjóðinni á orðbragðið eins og ekkert væri. Bragi ætlar að syngja þetta kvöld, rétt eins og aðstoðarfólkið Sigríður Thorlacíus og Kristbjörn Helgason