Sópransöngkonan Álfheiður Erla Guðmundsdóttir
og píanóleikarinn
Eva Þyri Hilmarsdóttir
fagna vorkomunni með norrænum sönglögum. Á
tónleikunum
munu meðal annars hljóma lög eftir E.
Grieg, J. Sibelius, Jórunni Viðar og frumflutningur laga
eftir Guðmund Emilsson.
Sópransöngkonan Álfheiður Erla Guðmundsdóttir
lauk framhaldsprófi
frá Söngskóla Sigurðar Demetz vorið
2013 þar sem hennar helstu kennarar voru Hallveig Rúnarsdóttir,
Sigrún Hjálmtýsdóttir og Gerrit Schuil. Álfheiður
hóf
bakkalárnám við „Hanns Eisler“ tónlistarháskólann
í Berlín vorið 2014.
Hennar helstu kennarar eru Anna Korondi, Liana Vlad og Hendrik Heilmann. Meðal
annarra kennara hennar við skólann eru Wolfram Rieger, Julia Varady
og Peter Berne. Álfheiður hefur unnið til verðlauna í alþjóðlegu Giulio-Perotti söngkeppninni
og tekið þátt í
meistaranámskeiðum hjá Laura
Sarti, Emma Kirkby og Janet Williams. Í námi sínu
við skólann
hefur Álfheiður meðal annars farið með hlutverk Susönnu úr Brúkaupi Fígarós sem
og sungið á tónleikum á vegum skólans sem bera titilinn
„Exzellenz-Konzert“
sem er fyrir framúrskarandi nemendur en verndari tónleikanna
er Daniel Barenboim.
Álfheiður hefur verið styrkþegi Deutschlandstipendium og Yehudi
Menuhin „Live Music Now“ sjóðsins frá árinu 2016. Hún mun ljúka
bakkalárnámi sínu í febrúar 2018 og hefja mastersnám við sama skóla í
apríl 2018.
Eva Þyri
Hilmarsdóttir
lauk prófum
frá Tónlistarskólanum
í Reykjavík, Det Jyske
Musikkonservatorium í Árósum, Danmörku, og The Royal Academy of Music í
London, en þaðan
útskrifaðist hún með hæstu
einkunn, hlaut heiðursnafnbótina DipRAM og The Christian Carpender
Piano Prize fyrir framúrskarandi lokatónleika.