Tix.is

Sinfó

Um viðburðinn

Víkingur leikur Mozart - Sinfóníuhljómsveit Íslands
30. nóv. » 19:30 Eldborg | Harpa

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Dima Slobodeniouk 

EINLEIKARI
Víkingur Heiðar Ólafsson                                   

EFNISSKRÁ
Wolfgang Amadeus Mozart Píanókonsert nr. 24 í c-moll
Richard Strauss Ein Heldenleben (Hetjulíf)            

Tónleikakynning í Hörpuhorni » 18:00

Víkingur Heiðar Ólafsson nær sífellt nýjum hæðum í listinni og nýr hljómdiskur hans hjá Deutsche Grammophon þar sem hann leikur píanóetýður Philips Glass hefur fengið frábærar viðtökur. Nú leikur hann píanókonsert Mozarts í c-moll, saminn árið 1786 þegar tónskáldið stóð á hátindi frægðar sinnar, um sama leyti og Brúðkaup Fígarós varð til. Þetta tilfinningaþrungna verk er meðal hinna bestu sem meistarinn festi á blað og var jafnframt eitt þeirra verka sem hvað mest áhrif höfðu á hinn unga Beethoven.

Hin kraftmiklu hljómsveitarverk Richards Strauss eru með því glæsilegasta sem samið hefur verið fyrir sinfóníuhljómsveit. Eitt þeirra er Ein Heldenleben (Hetjulíf) frá árinu 1898, þar sem Strauss dregur upp mynd af sjálfum sér sem eins konar ofurmenni sem sigrast á mótlæti heimsins. Þessi stórbrotna tónsmíð gerir kröfu um risavaxna hljómsveit og hefur ekki heyrst á Íslandi í meira en áratug. Nú hljómar verkið í túlkun Dima Slobodeniouk sem sló eftirminnilega í gegn með Sinfóníuhljómsveit Íslands í fyrra og er aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í Lahti.