Tix.is

Sinfó

Um viðburðinn

Mahler nr. 2 á Listahátíð í Reykjavík - Sinfóníuhljómsveit Íslands
1. jún. » 19:30 Eldborg | Harpa

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Osmo Vänskä

EINSÖNGVARAR
Christiane Karg
Sasha Cooke

KÓR
Mótettukór Hallgrímskirkju

KÓRSTJÓRI
Hörður Áskelsson

EFNISSKRÁ
Gustav Mahler Sinfónía nr. 2, Upprisusinfónían

Tónleikakynning í Hörpuhorni » 18:00

Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Listahátíð í Reykjavík hljómar Upprisusinfónía Mahlers sem er ein stórfenglegasta sinfónía allra tíma. Hljómsveitin er risastór og nýtur sín til fulls í tignarlegum hápunktum, auk þess kallar Mahler til leiks tvær söngkonur og blandaðan kór. Osmo Vänskä þekkir tónmál Mahlers betur en flestir aðrir og hefur nýverið hljóðritað sinfóníuna með Minnesota-hljómsveitinni. 

Mótettukór Hallgrímskirkju er í fremstu röð íslenskra kóra og kemur hér fram í stækkaðri mynd eins og hæfir þessari risavöxnu sinfóníu. Þessir tónleikar eru stórviðburður sem enginn unnandi sinfónískrar tónlistar má missa af. 

Söngkonurnar sem hér koma fram eru í fremstu röð á heimsvísu. Christiane Karg hefur um árabil vakið aðdáun fyrir silkimjúka og tæra sópranrödd sína, er fastagestur við Covent Garden og La Scala-óperuhúsin og hefur tvívegis unnið til hinna virtu Echo Klassik-verðlauna. Bandaríska mezzósópran-söngkonan Sasha Cooke sérhæfir sig í flutningi á tónlist Mahlers og hefur meðal annars hlotið Grammy-verðlaun fyrir túlkun sína á verkum hans.

Flutningur á sinfóníunni tekur 90 mínútur án hlés.

Uppselt er á tónleikana en þeir verða teknir upp í mynd og streymt beint á vef hljómsveitarinnar, www.sinfonia.is.