LA / Reykjavík - Sinfóníuhljómsveit Íslands
5. okt. » 19:30
HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Daníel
Bjarnason
EINLEIKARI
Leila
Josefowicz
KÓR
Hamrahlíðarkórarnir,
Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri
EFNISSKRÁ
Ígor
Stravinskíj Sálmasinfónía
John
Adams Scheherazade.2
Tónleikakynning » 18:00
Á vordögum 2017 hélt Fílharmóníuhljómsveitin í Los Angeles umfangsmikla hátíð þar sem íslensk tónlist og íslenskir flytjendur voru í forgrunni. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar ásamt Esa-Pekka Salonen var Daníel Bjarnason, staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Sinfóníuhljómsveit Íslands lætur ekki sitt eftir liggja heldur blæs til tveggja vikna hátíðar þar sem tónlist frá Los Angeles skipar veglegan sess.
John Adams er eitt helsta tónskáld Bandaríkjanna og nýr fiðlukonsert hans hefur vakið mikla hrifningu. Verkið, sem er samið sérstaklega fyrir Leilu Josefowicz, er byggt á Þúsund og einni nótt. Adams kveðst sérstaklega hafa leitt hugann að bágri stöðu kvenna í heimi sagnanna, ekki síst hinni hrífandi Scheherazade sem bjargar eigin lífi með því að segja sögur. New York Times skrifaði um frumflutninginn að leikur Josefowicz hafi verið „glæsilegur og innblásinn“ og hljóðritun hennar af verkinu var tilnefnd til Grammy-verðlauna 2016.
Á
tónleikunum hljómar einnig Sálmasinfónía Stravinskíjs sem margir telja eitt
helsta verk 20. aldar fyrir kór og hljómsveit. Verkið samdi hann fyrir
Sinfóníuhljómsveitina í Boston árið 1930 og fáeinum árum síðar var hann sjálfur
sestur að í Hollywood. Tær
og bjartur tónn Hamrahlíðarkóranna hentar verkinu fullkomlega enda verkið samið
fyrir ungar raddir. Haustið 2017 eru liðin 50 ár frá því að fyrst var boðað til
kóræfingar við Menntaskólann við Hamrahlíð undir leiðsögn Þorgerðar
Ingólfsdóttur, en farsælt samstarf Sinfóníuhljómsveitarinnar og Hamrahlíðarkóranna
spannar áratugi.
Tónleikarnir eru liður í LA / Reykjavík hátíð Sinfóníuhljómsveitar Íslands dagana 3. – 12. október.