Tix.is

Sinfó

Um viðburðinn

Örlagasinfónía Beethovens - Sinfóníuhljómsveit Íslands
1. mar. » 19:30 Eldborg | Harpa

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Eivind Aadland

EINLEIKARI
Baiba Skride

EFNISSKRÁ
Jónas Tómasson Sinfóníetta II
Robert Schumann Fiðlukonsert
Ludwig van Beethoven Sinfónía nr. 5, Örlagasinfónían

Tónleikakynning í Hörpuhorni » 18:00

Örlagasinfónía Beethovens er einhver kunnasta tónsmíð allra tíma. „Þannig knýja örlögin dyra“ á Beethoven að hafa sagt um upphafstónana frægu. Á þessum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands hljómar sinfónían í túlkun norska hljómsveitarstjórans Eivinds Aadland en hann þykir ná frábærum árangri með hljómsveitinni.

Lettneska fiðlustjarnan Baiba Skride kom í fyrsta sinn til Íslands árið 2015 og lék konsert Beethovens með Sinfóníuhljómsveit Íslands af slíku listfengi að henni var umsvifalaust boðið aftur. Nú leikur hún sjaldheyrðan fiðlukonsert Schumanns með hljómsveitinni, eitt síðasta verkið sem tónskáldið festi á blað. Konsertinn mátti bíða í meira en 80 ár þar til hann hljómaði í fyrsta sinn og það var ekki fyrr en fiðlusnillingurinn Yehudi Menuhin tók verkið upp á sína arma að það var tekið í tölu meistaraverka Schumanns. Nú hljómar þessi gleymdi konsert í fyrsta sinn á Íslandi.

Jónas Tómasson er mikilvirkt tónskáld og hefur meðal annars samið nokkrar sinfóníettur þar sem hann sækir innblástur í íslenska náttúru. Hér hljómar í fyrsta sinn Sinfóníetta II sem ber undirheitið „Laxárdalur – til Siggu“ og er tileinkuð Sigríði Ragnarsdóttur, eiginkonu tónskáldsins.