Tix.is

Sinfó

Um viðburðinn

Vínartónleikar Sinfóníunnar
4. jan. » 19:30 Eldborg | Harpa
5. jan. » 19:30 Eldborg | Harpa
6. jan. » 16:00 Eldborg | Harpa
6. jan. » 19:30 Eldborg | Harpa

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Karen Kamensek

EINSÖNGVARAR
Valgerður Guðnadóttir
Kolbeinn Ketilsson

EFNISSKRÁ
Óperettutónlist og valsar eftir Franz von Suppé, Emile Waldteufel, Johann Strauss yngri og Franz Lehár, m.a. úr Leðurblökunni og Kátu ekkjunni

Tónleikakynning í Hörpuhorni » 18:00

Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands hafa um árabil verið allra vinsælustu tónleikar hljómsveitarinnar. Nokkur af djásnum valsakóngsins Johanns Strauss prýða efnisskrána sem hefst venju samkvæmt á forleiknum að Leðurblökunni og lýkur á Dónárvalsinum. Inn á milli heyrast meðal annars spænskur vals og ungverskur dans. Einnig hljóma vinsælar óperettuaríur og dúettar, til dæmis Da geh ich zu Maxim úr Kátu ekkjunni og hið sívinsæla Wien, Wien, nur Du allein. Dansarar stíga einnig á svið og ljá tónleikunum einstakan hátíðarblæ.

Valgerður Guðnadóttir hefur einstaka rödd og útgeislun á sviði hvort sem hún fer með hlutverk Maríu í Söngvaseið eða Papagenu í Töfraflautunni. Hún syngur nú á Vínartónleikum Sinfóníunnar í fyrsta sinn. Kolbeinn Ketilsson er einn fremsti tenórsöngvari Íslands og syngur í óperuhúsum víða um heim, meðal annars í París, Genf og München. Hann hefur sungið flest veigamestu hlutverk óperubókmenntanna en honum er líka tamt að slá á léttari strengi. Vínartónlistina þekkir hann eins og lófann á sér enda stundaði hann á sínum tíma nám við Tónlistarháskólann í Vínarborg. Bandaríski stjórnandinn Karen Kamensek hefur einnig starfað við Volksoper í Vínarborg og er sérlega innblásinn túlkandi þeirra Strauss og félaga.