Astrid Lindgren tónleikar - Sinfóníuhljómsveit
Íslands
30.
sep. » 14:00 Eldborg | Harpa
HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Anna-Maria
Helsing
SÖGUMAÐUR
Þórunn
Arna Kristjánsdóttir og
Sigurður
Þór Óskarsson
KÓR
Kór
Kársnesskóla, Álfheiður Björgvinsdóttir kórstjóri
ÚTSETNINGAR
Jóhann
G. Jóhannsson
EFNISSKRÁ
Tónlist
úr Línu langsokk, Emil í Kattholti og fleiri ævintýrum Astrid Lindgren
Á þessum einstöku tónleikum verður flutt úrval tónlistar úr leikritum, leikgerðum og kvikmyndum sem byggjast á ævintýrum eftir Astrid Lindgren. Tónlist úr Línu langsokk, Emil í Kattholti, Bróðir minn Ljónshjarta og Á Saltkráku hljómar nú í fyrsta sinn á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í nýjum útsetningum Jóhanns G. Jóhannssonar. Gáskafull tónlistin með grípandi laglínum undirstrikar vel kenjar og óknytti sögupersónanna en einnig er að finna hrífandi og hugljúfa tónlist sem fangar vináttu og væntumþykju betur en nokkur orð.
Leikararnir Sigurður Þór og Þórunn Arna bregða sér í hlutverk ýmissa sögupersóna og ásamt Sinfóníuhljómsveitinni og Kór Kársnesskóla færa þau sagnaheim Lindgren inn í Eldborg. Líf og fjör einkennir þessa tónleika þar sem uppeldissjónarmið fullorðinna eru teygð og toguð og hugmyndir æskunnar um lífið og tilveruna fá að njóta sín til fulls.