Tix.is

Sinfó

Um viðburðinn

Astrid Lindgren tónleikar - Sinfóníuhljómsveit Íslands
30. sep. » 14:00 Eldborg | Harpa

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Anna-Maria Helsing

SÖGUMAÐUR
Þórunn Arna Kristjánsdóttir og
Sigurður Þór Óskarsson

KÓR
Kór Kársnesskóla, Álfheiður Björgvinsdóttir kórstjóri

ÚTSETNINGAR
J
óhann G. Jóhannsson                  

EFNISSKRÁ
Tónlist úr Línu langsokk, Emil í Kattholti og fleiri ævintýrum Astrid Lindgren               

Á þessum einstöku tónleikum verður flutt úrval tónlistar úr leikritum, leikgerðum og kvikmyndum sem byggjast á ævintýrum eftir Astrid Lindgren. Tónlist úr Línu langsokk, Emil í Kattholti, Bróðir minn Ljónshjarta og Á Saltkráku hljómar nú í fyrsta sinn á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í nýjum útsetningum Jóhanns G. Jóhannssonar. Gáskafull tónlistin með grípandi laglínum undirstrikar vel kenjar og óknytti sögupersónanna en einnig er að finna hrífandi og hugljúfa tónlist sem fangar vináttu og væntumþykju betur en nokkur orð.

Leikararnir Sigurður Þór og Þórunn Arna bregða sér í hlutverk ýmissa sögupersóna og ásamt Sinfóníuhljómsveitinni og Kór Kársnesskóla færa þau sagnaheim Lindgren inn í Eldborg. Líf og fjör einkennir þessa tónleika þar sem uppeldissjónarmið fullorðinna eru teygð og toguð og hugmyndir æskunnar um lífið og tilveruna fá að njóta sín til fulls.