Tix.is

Sinfó

Um viðburðinn

Jólatónleikar Sinfóníunnar
16. des. » 14:00 Eldborg | Harpa
16. des. » 16:00 Eldborg | Harpa
17. des. » 14:00 Eldborg | Harpa
17. des. » 16:00 Eldborg | Harpa

HLJÓMSVEITARSTJÓRI
Bernharður Wilkinson

EINSÖNGVARAR
Margrét Eir
Kolbrún Völkudóttir

KYNNIR
Trúðurinn Barbara

GESTIR
Stúlknakór Reykjavíkur
Listdansskóli Íslands
Saxófónhópur Tónlistarskóla Garðabæjar
Ungir einleikarar

EFNISSKRÁ
Robert Sheldon Jólaforleikur
John Francis Wade Adeste Fideles (Frá ljósanna hásal)
Pjotr Tsjajkovskíj Dansar úr Hnotubrjótnum
Jester Hairston Mary’s Boy Child

Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar hafa um árabil notið gífurlegra vinsælda meðal hlustenda á öllum aldri. Á þessum hátíðlegu fjölskyldutónleikum eru sígildar jólaperlur í bland við klassísk jólaævintýri og grípandi hljómsveitartónlist allsráðandi. Ungir ballettdansarar dansa þætti úr Hnotubrjótnum, píanóleikarar flytja jólasyrpu, Saxófónhópur Tónlistarskóla Garðabæjar sveiflar hlustendum yfir í Karíbastemningu stáltrommuhóps sem færir hita og yl inn í Eldborg. Stúlknakór Reykjavíkur, Margrét Eir og Kolbrún Völkudóttir ásamt táknmálskórnum Litlu sprotunum færa hlustendum jólalögin í sannkölluðum hátíðarbúningi. Kynnir tónleikanna, trúðurinn Barbara, lætur heldur ekki sitt eftir liggja.

Tónleikarnir eru túlkaðir á táknmáli og Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar flytur jólalög fyrir og eftir tónleikana.