Tix.is

Sinfó

Um viðburðinn

Ungir einleikarar - Sinfóníuhljómsveit Íslands
11. jan. » 19:30 Eldborg | Harpa

EFNISSKRÁ

George Frideric Händel Tornami a vagheggiar, úr Alcinu
W.A. Mozart 
Der hölle Rache, úr Töfraflautunni
Giuseppe Verdi
 La traviata, forleikur
Vincenzo Bellini 
Ah! Non giunge, úr La sonnambula
Richard Strauss
 Hornkonsert nr. 2 
Georg Philipp Telemann
 Víólukonsert
Sergei Prokofíev
 Píanókonsert nr. 3

HLJÓMSVEITARSTJÓRI

Daniel Raiskin

EINLEIKARAR

Bryndís Guðjónsdóttir, einsöngvari
Guðmundur Andri Ólafsson, hornleikari
Ásta Kristín Pjetursdóttir, víóluleikari
Romain Þór Denuit, píanóleikari

Á hverju ári fer fram keppni ungra einleikara sem Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur fyrir í samvinnu við Listaháskóla Íslands. Keppnin er opin nemendum á háskólastigi, óháð því hvaða skóla þeir sækja, og fá þeir hlutskörpustu að leika einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi tónleikanna er Daniel Raiskin sem einnig stjórnar tónleikum Ungsveitinni á starfsárinu enda fer honum einkar vel úr hendi að starfa með ungu fólki.

Sinfóníuhljómsveitin og Listaháskóli Íslands leiða saman hesta sína og styðja við okkar efnilegasta tónlistarfólk á leið þess inn í heim atvinnumennskunnar. Óhætt er að segja að mikil eftirvænting ríki á hverju ári í aðdraganda þessara tónleika og stemningin á tónleikunum sjálfum er engu lík.

Einleikarakeppnin fór fram helgina 28.-29. október. Alls tóku 23 ungir einleikarar þátt og urðu fjórir hlutskarpastir í keppninni að þessu sinni. Það voru þau Ásta Kristín Pjetursdóttir, víóluleikari, Bryndís Guðjónsdóttir, sópran, Guðmundur Andri Ólafsson, hornleikari og Romain Þór Denuit, píanóleikari.

Það verður spennandi að sjá þessa ungu og upprennandi tónlistarmenn stíga á svið með hljómsveitinni í Eldborg í Hörpu.

Námsmenn geta keypt miða á 1.700 kr. gegn framvísun Skólakorts Sinfóníunnar í miðasölu Hörpu.