Tix.is

Sinfó

Um viðburðinn

Paul Lewis einleikstónleikar
Einleikstónleikar í Norðurljósum
4. feb. » 17:00 Norðurljós | Harpa

EINLEIKARI
Paul Lewis

EFNISSKRÁ
Joseph Haydn Píanósónata í C-dúr Hob. XVI/50
Ludwig van Beethoven 6 bagatellur op. 126
Johannes Brahms 6 píanóstykki op. 118
Joseph Haydn Píanósónata í G-dúr Hob. XVI/40

Paul Lewis er einn fremsti píanisti samtímans og það er sannkallað fagnaðarefni að hann haldi einleikstónleika í Norðurljósum í heimsókn sinni til Íslands en hann leikur Keisarakonsert Beethovens með Sinfóníuhljómsveit Íslands 1. febrúar. Á einleikstónleikunum leikur hann verk eftir þrjá meistara tónlistarinnar í Vínarborg á 18. og 19. öld – Haydn, Beethoven og Brahms – og eru þeir liður í viðamiklu tónleikahaldi hans um allan heim á næsta ári þar sem hann leikur verk þessara þriggja meistara m.a. í Lundúnum, Brussel, Flórens, Tókýó, Melbourne og Vancouver.

Um efnisskrána segir Lewis sjálfur: „Píanósónötur Haydns hafa að geyma margt af því frumlegasta og skemmtilegasta í gjörvöllum píanóbókmenntunum. Það eru ekki mörg tónskáld sem geta fengið áheyrendur til að skella upp úr en Haydn er eitt þeirra, kemur sífellt á óvart í tónlist sinni. Brahms blandar í verkum sínum saman villtri ástríðu og fullkominni fagmennsku tónsmíðameistarans; honum tekst í tónlistinni að gefa jafnvel hamslausri tilfinningu yfirvegaðan blæ. Bagatellur Beethovens eru brú milli þessara tveggja heima; í sumum þeirra má greina kímnigáfu Haydns en í öðrum heyrist fyrirboði þeirrar rómantíkur sem einkennir Brahms.“