Tix.is

Harpa

Um viðburðinn

Sálarsöngvarinn, Brit verðlaunahafann og einn vinælasti tónlistarmaður Bretlands síðustu árin heldur tónleika í Eldborg sunnudaginn 17.júlí.

James Morrison hefur átt ótal lög í efstu sætum vinsældarlista um heim allan síðustu ár. Lög eins og You Give Me Something, I Won´t Let You Go, Please Don´t Stop the Rain, Wonderful World, Broken Strings (með Nelly Furtado), The Pieces don´t Fit Anymore og svo nýjasta lagið Demons.

James Morrison hefur gefið út fjórar plötur sem allar hafa notið gífurlegra vinsælda og hvarvetna fengið mikið lof gagnrýnenda en James gaf út sína fyrstu plötu árið 2006 þá aðeins 21 árs.

Það verður því flott stemning á tónleikunum í sumar þegar þessi einstaki listamaður stígur á svið Eldborgar, ásamt frábærri hljómsveit sinni og tekur öll sín bestu lög.